Æfingavöllur norðan við aðalvöll.
Golfklúbbur
Akureyrar
Akureyri. 28.júlí.2009. Golfklúbbur
Akureyrar , hefur í samkomulagi við Akureyrarbæ opnað lítinn golfvöll norðan við eigin völl við Miðhúsabraut.
Tilgangurinn er að koma til móts við þá sem ekki eru í Golfklúbbi en langar að prufa og æfa sig við ásættanlegar
aðstæður. Völlurinn er opinn öllum áhugasömum um golfíþróttina og ekki þarf að greiða aðgangseyrir fyrir
notkunina. Með þessu móti vill Golfklúbbur Akureyrar leggja sitt af mörkum í þessu
árferði fyrir þá sem hafa áhuga á íþróttinni en vilja byrja hægar áður en þeir telja sig tilbúna að fara
á 18 holu völl.Allir áhugasamir um golfíþróttina eru hvattir til að nota sér
þessar nýju aðstæður sem nú eru í boði. Stjórn Golfklúbbs Akureyrar.