Í gær var haldinn aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar, á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, Tryggvi Þór Gunnarsson var valinn sem fundarstjóri og stýrði hann fundinum af miklum myndarbrag. Sigmundur Einar Ófeigsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, las skýrslu stjórnar og fór yfir atburði líðandi árs. Guðlaug M. Óskarsdóttir, gjaldkeri klúbbsins, fór yfir ársreikninginn fyrir 2015 og var hann samþykktur.
Sigmundur Einar Ófeigsson var endurkjörinn sem formaður GA og mun stjórn klúbbsins einnig halda áfram óbreytt næsta árið.
Tillögur stjórnar GA um árgjöld voru samþykkt og hér má sjá árgjöld næsta árs. Líkt og aðrir golfklúbbar hafa gert undanfarið höfum við breytt uppsetningu á árgjöldum í GA til höfða betur til yngri kynslóðarinnar og sporna við brottfalli kylfinga á aldrinum 20 - 26 ára. Því var samþykkt að lækka árgjaldið fyrir þann hóp. Hafa ber í huga að hjá GA þá borga okkar krakkar/unglingar eingöngu árgjaldið sitt. Á það leggst ekki æfingagjald líkt og tíðkast í mörgum öðrum klúbbum af þessari stærðargráðu.
Rekstur GA gekk vel á nýliðnu ári. Það sem þó helst vantaði upp á voru tekjur af árgjöldum en þær tekjur lækkuðu á milli ára. Mótahald tókst virkilega vel í sumar sem og rekstur golfbúðarinnar og fór það svo að tekjur jukust um rétt um 11,5 milljónir á milli ára. Það var þó einnig þannig að gjöld jukust líka á milli ára eða um 10 milljónir króna.
Ebidta klúbbsins er rétt um 12 milljónir króna á móti 9,5 milljónum í fyrra. Skuldastaða klúbbsins er fín þó svo að skuldirnar hafi aukist á milli ára. Það er þó aðallega tilkomið vegna framkvæmda við byggingu Klappa sem eru núna í fullum gangi og á GA eftir að fá þá fjárhæð endurgreidda í apríl á næsta ári.
Við fjárfestum í vor í fjórum nýjum tækjum á golfvöllinn. Það var komin talsverð þörf á því að bæta við tækjum og því voru þau keypt í vor og hafa reynst virkilega vel í sumar. Einnig var gengið frá kaupunum á Trackman og er hann nú allur í okkar eigu.
Einnig voru veitt nokkur verðlaun á fundinum.
Þeir Víðir Steinar Tómasson, Stefán Einar Sigmundsson og Kristján Benedikt Sveinsson fengu afhent afreksmerki GA þar sem þeir unnu sína fyrsta Íslandsmeistaratitla.
Stefán Einar varð holumeistari GA 2015 og fékk hann einnig háttvísibikarinn.
Stefán er öflugur og flottur kylfingur og var m.a. hluti af íslandsmeistaraliði okkar í sveitakeppni pilta 18 ára og yngri. Stefán starfaði hjá Golfklúbbnum í sumar við golfskólann og stóð sig virkilega vel í kennslunni. Stefán er vel liðinn af öllum krökkunum sem hann þjálfar og er þeim góð fyrirmynd.
Stefán endurspeglar vel þá eiginleika sem Golfklúbbur Akureyrar vill sjá í sínum afreksunglingum. Sá sem hlýtur þennan bikar þarf að vera duglegur, samviskusamur, hafa góðan íþróttaanda og vera bæði sér og klúbbnum sínum ávallt til sóma og umframt allt góð fyrirmynd.
Það var svo Kristján Benedikt Sveinsson sem var valinn kylfingur ársins.
Kristján hefur staðið sig virkilega vel á nýliðnu ári og náð frábærum árangri á golfvellinum.
Þar ber helst að nefna:
- Akureyrarmeistari ( yngsti Akureyrarmeistari frá upphafi)
- Íslandsmeistari í holukeppni
- Íslandsmeistari í sveitakeppni pilta 18 ára og yngri
- 2 sæti í íslandsmótinu í höggleik
- 2 sæti á stigalista GSÍ á Íslandsbankamótaröðinni
Einnig er Kristján í afrekshóp GSÍ og hefur verið valinn til keppni á mótum erlendis fyrir Íslands hönd en hann fór m.a. í sumar á European young masters í Sviss og stóð sig virkilega vel.
Kristján lækkað forgjöf sína talsvert í sumar og er nú kominn í 1,3, átti hann m.a. allnokkra hringi undir pari í sumar og á þannig hringjum væntanlega eftir að fjölga talsvert á næstu árum.
Óskum við Kristjáni og Stefáni kærlega til hamingju með nafnbótina og eru þeir vel að þeim komnir.