Anna Einarsdóttir og Ágúst Már Þorvaldsson mætast í úrslitaleik Holukeppni GA

Holukeppni GA var endurvakin í sumar við mikla hrifningu GA félaga en 59 keppendur skráðu sig til leiks og freistuðu þess að verða Holukeppnismeistarar GA.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan fyrstu leikir fóru fram og lauk undanúrslitaviðureignunum í vikunni en þar mættust annars vegar Ágúst Már og Viðar Valdimarsson þar sem Ágúst sigraði 1/0 og hins vegar Anna Einarsdóttir og Arnar Freyr Viðarsson en Anna vann þar 5/3.

Það verða því þau Anna og Ágúst sem munu freista þess að verða meistarar en sú viðureign fer fram fyrir 1. september. 

Við viljum þakka öllum fyrir stórskemmtilegt mót og hlökkum til að gera þetta enn stærra á næsta ári!