Frábær spá fyrir morgundaginn!!! 10 stiga hiti og alveg logn. Allir að mæta í skemmitlega keppni þar sem hart verður barist hvor bóndinn vinnur í ár.
Bjarni Þórhalls er búinn að múta framkvæmdarstjóranum með 2 samsung tækjum að hann fái betra lið en Halli Bjarna er í frábærri æfingu og mun ekki gefa neitt eftir. Frekari upplýsingar hér fyrir neðan.
Bændaglíma GA verður spiluð laugardaginn 7.okt. Langtímaspáin er nokkuð góð og verður þetta snilldarmót þá hálfgerður lokahnykkur á sumrinu.
Það verður mæting í golfskálann kl. 9:30 og við ræsum svo út af öllum teigum kl. 10:00.
Skráning á golf.is er bara til að sjá skráningu.
Við skiptum liðunum svo upp í svarta liðið og hvíta liðið og setjum upp skemmtilega keppni.
Bændur í þetta skiptið eru þeir Bjarni Þórhallsson og Karl Haraldur Bjarnason.
Vídalín veitingar mun bjóða upp á Kjötsúpu í mótslok.
Mótsgjald er 2000 krónur.