Biggi kylfusmiður er á leið norður

Biggi kylfusmiður er á leið norður í enn eitt skiptið og verður með kylfumælingar í inniaðstöðu okkar í Íþróttahöllinni 20&21 júlí næst komandi.

Biggi hefur komið reglulega norður til okkar undanfarin ár og er iðulega uppselt í mælingar til hans þannig við hvetjum áhugsama að hafa samband sem fyrst til að bóka mælingar en það er gert með því að senda tölvupóst á jonheidar@gagolf.is

Hægt er að bóka fulla mælingu (1klst) eða hálfa mælingu fyrir annaðhvort járn eða trékylfur (30mín). 

Nýtum tækifærið og látum þann besta í bransanum mæla okkur fyrir glænýjum kylfum.