Ágætu GA félagar.
Aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar vegna starfsársins 2019 - 2020 verður haldinn þriðjudaginn 15. desember klukkan 20:00. Vegna hertra samkomutakmarkana og ástands í þjóðfélaginu verður fundurinn haldinn á netinu í gegnum TEAMS og þurfa GA félagar að skrá sig á fundinn með því að senda tölvupóst á jonheidar@gagolf.is. Í tölvupóstinum þarf að koma fram nafn og kennitala þess sem hyggst sitja fundinn. Á fundardegi verður sent rafrænt fundarboð til þeirra sem tilkynnt hafa þátttöku. Með þessum hætti getum við tryggt að sem flestir félagsmenn geti tekið þátt í aðalfundinum á þessum sérkennilegu tímum.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
Hvetjum við ykkur endilega til að skoða skýrslu stjórnar og ársreikninginn þegar það kemur inn á heimasíðu GA.
Starfsfólk GA.