Golfkennarar GA ætla að vera með æfingar fyrir almenna kylfinga á útvöldum dögum í sumar. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir kylfinga að bæta sig en hvert skipti kostar litlar 2000 krónur.
Fyrsta æfingin verður á morgun þann 15. Júní þar sem farið verður yfir vipp í grínkanti.
Hér að neðan má sjá frekari upplýsingar um æfingarnar og skráningu:
Golfkennarar GA munu bjóða upp á æfingar fyrir félagsmenn sumarið 2020.
- 7 skipti - 1 klst í senn.
- Hvert skipti á kr. 2.000.-
- Æfingarnar verða á mánudögum í júní og júlí kl 17:30-18:30.
- Farið verður í öll högg sem íþróttin krefst af okkur eins og upphafshögg (dræf), járnahögg, högg í kringum flatir og pútt.
- Hámark 12 manns á hverja æfingu.
- Aðeins verður hægt að skrá sig á eina æfingu í einu.
Dagskrá æfinga er eftirfarandi:
- 15. júní Vipp úr grínkanti
- 22. júní Járnahögg
- 29. júní Pitch
- 6. júlí Upphafshögg
- 13. júlí Glompuhögg
- 20. júlí Járnahögg
- 27. júlí Pútt
Hægt er að skrá sig á æfingar hjá GA með því að senda póst á skrifstofa@gagolf.is eða með því að hringja á skrifstofu GA í síma 462-2974 kl. 08-16 á virkum dögum