Nú á dögunum undirrituðu Steindór Kristinn Ragnarsson framkvæmdarstjóri GA og Arnar Guðmundsson hjá FastAK undir áframhaldandi samstarfssamning á milli GA og Fasteignasölu Akureyrar. Er þetta einn liður að því að gera starfið hjá GA eins gott og hægt er.
Við höfum undanfarin ár átt í góðu samstarfi við Fasteignasölu Akureyrar og þökkum þeim fyrir þann stuðning sem þeir hafa sýnt okkur.
Það eru fjölmörg fyrirtæki sem standa þétt við bakið á okkur hjá GA og þökkum við þeim fyrir stuðninginn, von er á frekari fregnum á næstu dögum af samningsmálum.