Túlkun viðbragðshóps GSÍ á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum opnun með ákveðnum takmörkunum og verður inniaðstaðan okkar opin frá og með mánudeginum 29. mars með neðangreindum reglum/takmörkunum.
Golfhermar:
- - Grímuskylda
- - Þeir kylfingar sem spila í herminum eru skráðir niður hjá starfsfólki GA, nafn símanúmer og kennitala. Þetta er gert til að auðvelda smitrakningu ef upp myndi koma smit.
- - Salernin verða merkt hverjum hermi og eru kylfingar beðnir um að nýta þau salerni sem við á.
- - Einungis tveir kylfingar í golfhermi
- - Enginn sameiginlegur búnaður, hver og einn notar sína bolta og tí
- - Aðeins annar aðilinn notar tölvuna. Óheimilt er að nota snertiskjáinn, einungis músina og lyklaborðið og þarf sá aðili að sótthreinsa það vel að leik loknum.
- - Kylfingar eru beðnir um að mæta einungis rétt fyrir tímann sinn og yfirgefa svæðið að honum loknum. Ekki er leyfilegt að flakka um svæðið eða á milli herma á meðan að leik stendur.
- - Virða þarf þann tíma sem pantaður var og er leikmönnum skylt að vera búinn að yfirgefa svæðið þegar þeirra tími er útrunnin til þess að hleypa næstu aðilum að.
- - 2 metra reglan verður að vera viðhöfð öllum stundum
- - Gæta skal að almennum sóttvörnum