Golfklúbbur Akureyrar fagnar 85 ára afmæli sínu í dag, þann 19. ágúst 2020.
Golfklúbbinn var stofnaður þann 19. ágúst 1935 og er næstelsti golfklúbbur landsins á eftir Golfklúbb Reykjavíkur, sem var stofnaður ári á undan. Klúbburinn kom sér fyrst upp fínum 6 holu velli á Gleráreyrum, sem síðar varð athafnarsvæði Slippstöðvarinnar. Seinna meir var sett upp aðstaða við Þórunnarstræti og var þar 9 holu völlur í nokkurn tíma. Árið 1970 flutti klúbburinn síðan starfsemi sína að Jaðri fyrir ofan Akureyri þar sem völlurinn er nú, og fagnar klúbburinn því einnig 50 árum á Jaðri í ár.
Á þessum 85 árum hefur GA átt Íslandsmeistara fullorðinna í golfi 20 sinnum, en þó síðast árið 2002 þannig það er líklega orðið tímabært á nýjan meistara frá GA.
Það eru því orðin 5 ár síðan 80 ára afmælismót GA var haldið, en þar lék Fannar Már Jóhannsson á 68 höggum og sigraði mótið.
Við óskum GA félögum til hamingju með daginn!