Í dag fékk Golfklúbbur Akureyrar afhent viðurkenningarskjal vegna endurnýjunnar sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Viðar Sigurjónsson afhenti skjalið fyrir hönd ÍSÍ og tók Steindór Kr. Ragnarsson framkvæmdastjóri GA við skjalinu. Athöfnin fór fram í blíðskaparveðri á 18. flötinni í dag. GA hefur borið þessa viðurkenningu síðan 2006 með stolti.
"Það er okkur dýrmætt að hafa endurnýjað þá viðurkenningu að GA sé Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. GA leggur mikið upp úr faglegu og góðu starfi, það að GA sé Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er afar mikilvægt og hjálpar okkar starfsemi" sagði Steindór Kr. Ragnarsson framkvæmdastjóri GA af þessu tilefni.