Nú eru Heiðar Davíð og Stefanía Kristín að fara af stað með nýliðanámskeið hjá GA - tilvalið fyrir byrjendur og þá sem eru tiltölulega nýbyrjaðir í golfi, eitthvað fyrir alla. Einnig verða námskeið fyrir almenna kylfinga sem hefjast í júní og verða þau nánar auglýst síðar.
Nýliðanámskeið 1.
- Námskeið á kr. 15.000.-
- 5 skipti - 1 klst í senn.
- Tvisvar til þrisvar í viku í tvær vikur.
- Farið í dræf, járnahögg, högg í kringum flatir, pútt og spilaðar nokkrar holur á par 3 holu vellinum (eða í golfhermi í inniaðstöðu) þar sem farið er yfir hvað skuli hafa í huga þegar verið er að spila golf og helstu reglur leiksins.
Kennarar verða Heiðar Davíð og Stefanía Kristín.
3 námskeið verða haldin í apríl og maí:
Tímasetningar fyrsta námskeiðs:
- 8. apríl kl 20-21
- 10. apríl kl. 20-21
- 11. apríl kl. 20-21
- 15. apríl kl. 20-21
- 17. apríl kl. 20-21
Tímasetningar annars námskeiðs:
- 23. apríl kl. 21-22
- 25. apríl kl. 21-22
- 29. apríl kl. 21-22
- 1. maí kl. 21-22
- 2. maí kl. 21-22
Tímasetning þriðja námskeiðs:
- 13. maí kl. 21-22
- 15. maí kl. 21-22
- 20. maí kl. 21-22
- 22. maí kl. 21-22
- 27. maí kl. 21-22
Nýliðanámskeið 2
- Námskeið á kr. 35.900.-
- 8 skipti - 1 klst í senn.
- Tvisvar til þrisvar í viku í þrjár vikur.
- Farið verður í öll högg sem íþróttin krefst af okkur eins og upphafshögg (dræf), járnahögg, högg í kringum flatir og pútt. Einnig verður farið í spil í golfhermi, reglur í golfi, hvernig eigi að notast við golf.is og hvenær sé best fyrir nýliða að fara út á 18 holu völlinn að spila.
- Árgjald á 6 holu völlinn Dúddisen er innifalið. Völlurinn samanstendur af sex holum allt frá 110m löngum holum niður í 30m langar holur og hentar því nýliðum mjög vel..
- Einn 18 holu hringur á Jaðri innifalinn. Einnig hægt að skipta honum upp í tvo 9 holu hringi.
Kennarar verða Heiðar Davíð og Stefanía Kristín.
2 námskeið verða haldin í apríl og maí:
Tímasetningar fyrra námskeiðs:
- 8. apríl kl. 21-22
- 10. apríl kl. 21-22
- 11. apríl kl. 21-22
- 15. apríl kl. 21-22
- 17. apríl kl. 21-22
- 23. apríl kl. 21-22
- 25. apríl kl. 21-22
- 29. apríl kl. 21-22
Tímasetningar seinna námskeiðs:
- 6. maí kl. 20-21
- 8. maí kl. 20-21
- 13. maí kl. 20-21
- 15. maí kl. 20-21
- 20. maí kl. 20-21
- 22. maí kl. 20-21
- 27. maí kl. 20-21
- 29 maí kl. 20-21
Námskeið fyrir almenna kylfinga.
- 5 klst á 15.000.kr.
- 4 skipti – 75mín í senn.
- Tvisvar í viku í tvær vikur.
- Farið í dræf, járnahögg, wedgehögg, vipp, pútt og bönkerhögg.
Námskeiðið byrjar í júní, nánari tímasetningar verða auglýstar síðar
Kennarar verða Heiðar Davíð og Stefanía Kristín.
Hægt er að skrá sig á námskeið hjá GA með því að senda póst á skrifstofa@gagolf.is eða með því að hringja á skrifstofu GA í síma 462-3846 kl. 08-16 á virkum dögum.