Í dag, fimmtudaginn 6. ágúst opnuðum við nýjan rauðan teig á 10. holu.
Teigurnir er í rjóðri við göngustíg á 12. grín en kylfingar þurfa að labba frá gamla teignum eina 50 metra til hægri og áfram.
Nýja teiginn má sjá á myndum hér að neðan og staðsetningu hans.
Við hlökkum til að heyra viðbrögð kylfinga við nýja teignum og vonandi kemur hann vel út fyrir kylfinga sem slá af rauðum teigum.