Tilboðið verður enn betra enn í fyrra en munum við bjóða upp á 30% afslátt af kortum í október mánuði. Þannig geta þrír kylfingar verslað sér saman 50 tíma kort á 579kr klst. á mann. 50 klukkustundir tryggja tvo tíma í viku frá 1. nóvember - 17. apríl! Tlboðið er út októbermánuð og munum við svo opna Golfhöllina þann 1. nóvember.
Við hvetjum GA félaga til að versla sér kort í október fyrir veturinn og nýta sér þessa úrvalsaðstöðu sem við bjóðum félagsmönnum upp á. Inniaðstaða GA í Golfhöllinni er með besta móti og verður tekið vel á móti ykkur í vetur í kjallara Íþróttahallarinnar.
Afgreiðsla GA er opin 8-16 í október - frekari upplýsingar og fyrirspurnir afgreiðast á jonheidar@gagolf.is
Einnig viljum við benda þeim kylfingum á sem eru með skáp í Golfhöllinni að rukkun er komin í heimabankann fyrir skápnum sem við biðjum kylfinga um að greiða ætli þeir sér að vera áfram með skápinn.