Stúlknalandslið Íslands endaði í 16.sæti á EM í Slóvakíu sem lauk um helgina.
Ísland var í 15. sæti eftir höggleikinn en þar spilaði Andrea á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari.
Stelpurnar töpuðu síðan á móti Póllandi 2-1 en Andrea tapaði sínum leik 6/5 þar. Í næsta leik spilaði Ísland á móti Austurríki og tapaði þar 2,5-0,5 en Andrea spilaði í fjórmenning og tapaði þar 2-0.
Hér má lesa nánar um viðureignir Íslands á mótinu https://www.golf.is/stulknalandslid-islands-endadi-i-16-saeti-a-em-i-slovakiu/
Ljóst er að stelpurnar hefðu viljað ná betri árangri en þessi reynsla mun hjálpa stelpunum í framtíðinni.