Þrettánda Þriðjudagsmót GA og Greifans fór fram í gær í hálf kuldalegu veðri. Keppendur létu það þó ekki á sig fá og tveir kylfingar fengu hvorki meira né minna en 39 punkta, flott forgjafarlækkuun á þá.
Verðlaun frá þessu og fyrri Þriðjudagsmótur eru hjá okkur á skrifstofu GA og við hvetjum verðlaunahafa til þess að koma og ná í sína vinninga. Annars óskum við verðlaunahöfum sem létu sig hafa það að spila í þessum kulda innilega til hamingju. Hér að neðan má sjá úrslitin:
Höggleikur
1. Hólmgrímur Helgason
2. Snorri Bergþórsson
3. Bjarni Ásmundsson
Punktakeppni
1. Snorri Bergþórsson
2. Hólmgrímur Helgason
3. Bjarni Ásmundsson