Eftir frábæra tvo daga kláraðist Volkswagen Open í gær með flottu lokahófi í golfskálanum. Veðrið ákvað að hlusta ekkert á veðurfræðingana og var ótrúlega milt báða keppnisdagana, kylfingum til mikillar ánægju. Flott tilþrif sáust einnig um allan völl í þessu skemmtilega móti, en þar voru Þórarin Valur Árnason og Viðar Valdimarsson fremstir á meðal jafningja. Þeir félagar enduðu mótið með 94 punkta, 10 punktum á undan næsta liði, og sigruðu þeir því með miklum yfirburðum.
Golfklúbbur Akureyrar þakkar Höldur og Bílaleigu Akureyrar kærlega fyrir frábært mót.
Næsta opna mót golfklúbbsins verður Byko Open, þann 9. september. Við viljum auðvitað fjölmenna í það mót og bendum því á að skráning er opin á golf.is eða í síma 462-2974.
Úrslit og verðlaun
Föstudagur
Nándarverðlaun 4. Hola Steinn Árni Á – 2.59m
Nándarverðlaun 11. Hola – Friðrik Sigþórs – 2.57m
Nándarverðlaun 18. Hola Sigurður Hjartarson – 19cm
Lengsta Drive 15. Hola – Jason Wright
Laugardagur
Nándarverðlaun 4. Hola – Valur Guðmundsson – 1.11m
Nándarverðlaun 11. Hola – Ágúst Axelsson 3.15m
Nándarverðlaun 18. Hola – 94cm
Lengsta Drive 15. Hola – Jón Viðar Þ.