Hið árlega texas-scramble mót, World Class Open fór fram á Jaðri í dag með miklum glæsibrag. Veðrið lék við keppendur á vellinum í dag og var bara nokkuð hlýtt þó að það hafi aðeins blásið að sunnan. Það voru hvorki meira né minna en 120 manns / 60 lið sem tóku þátt og sáust glæsilegir taktar úti á velli.
Það voru þeir feðgar Þorsteinn Konráðsson og Konráð Þorsteinsson sem sigruðu höggleikinn en þeir spiluðu glæsilegt golf og enduðu á 60 höggum með forgjöf. Við óskum þeim og öllum öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju en hér að neðan má einmitt sjá alla verðlaunahafa:
Vinningshafar geta sótt verðlaunin sín á skrifstofu Golfklúbbs Akureyrar frá 14. Júní til 28. Júní.
Höggleikur með forgjöf:
1. Sæti - 60 högg - Þorsteinn Konráðsson og Konráð Þorsteinsson
2. Sæti - 62 högg - Aðalsteinn Ingi Magnússon og Baldur Einar Jónsson Örvar Samúelsson og Tumi Hrafn Kúld
3. Sæti - 63 högg (betri á holum 1-9) - Örvar Samúelsson og Tumi Hrafn Kúld
4. Sæti - 63 högg (verri á holum 1-9) - Sturla Höskuldsson og Magnús Finnsson
5. Sæti - 64 högg (bestir á 1-9) - Viktor Ingi Finnsson og Eyþór Hrafnar Ketilsson
Nándarverðlaun:
4. Hola - Baldur Jónsson I 75 cm
8. Hola - Sigurbjörn Sigurgeirsson I 2,69 m
11. Hola - Guðrún Gísladóttir I 2,34 m
14. Hola - Viðar Jónsson I 1,54 m
18. Hola - Dagmar Elvarsdóttir I 1,57 m
Takk kærlega allir fyrir þátttökuna í þessu frábæra móti!