Fastir tímar í golfhermum GA fram að áramótum

Þegar haustið sækir að okkur styttist í opnun Golfhallarinnar en við opnum hana mánudaginn 7. október.

Töluvert hefur verið um að fólk vilji tryggja sér fasta tíma í golfhermunum og viljum við benda þeim á sem vilja það að hafa samband við Jón Heiðar á netfangið jonheidar@gagolf.is

Fasta tíma þarf að greiða fyrirfram og kosta tveir tímar á viku frá 7. október - 5. janúar 100.000kr eða ef fjórir eru saman 25.000kr á mann. Við munum byrja tímabilið í Golfhöllinni áður en nýja byggingin verður klár og því munum við einungis vera með tvo herma til að byrja með en stefnum á opnun í nýju aðstöðunni í desember. Fastir tímar í nýja húsnæðinu verða auglýstir þegar nær dregur þeirri opnun.

Við biðjum þá sem eru áhugasamir um fasta tíma að hafa samband sem fyrst svo við getum tryggt ykkur tímana.