Nú um helgina fór fram sveitakeppni GSÍ.
Kvennasveitin okkar spilaði í 2. deild og stóðu sig frábærlega. Þær unnu alla sína leiki og fara því upp um deild og leika því í efstu deild á næsta ári.
Strákarnir kepptu í 3.deild og var hún spiluð í Grundarfirði. Þar enduðu þeir í öðru sæti eftir tap á móti GHD í úrslitum. Var það nóg til þess að tryggja okkur sæti í 2. deild á næsta ári.
Sannarlega frábær árangur hjá okkar kylfingum.