Friðrik Gunnarsson, Frikki hefur verið ráðinn aðstoðargolfkennari hjá GA í sumar.
Friðrik hefur skrifað undir samning við Golfklúbb Akureyrar og mun hann hefja störf í byrjun júni. Friðrik hóf nám í golfkennaraskóla PGA núna í haust. Hann mun vera Brian til aðstoðar við barna- og unglinga kennslu og almenna kennslu í sumar.
Friðrik hefur um árabil starfað hjá Golfklúbbi Akureyrar bæði í veitingasölu, í afgreiðslu og við kennslu.
Auk Friðriks hefur Stefanía Kristín verið ráðin sem golfleiðbeinandi í sumar og mun hennar aðalstarf vera að aðstoða við kennslu og þjálfun yngri og eldri flokka stúlkna. Stefanía stundar nám í Pfeiffer University í Norður-Karólínu og spilar hún fyrir golflið skólans með námi.
Bjóðum við þau velkomin til starfa.