GA hlaut styrk í Menningar- og viðurkenningasjóði KEA

Úthlutað var úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA þann 2. desember

Var þetta í 91. skipti sem veitt er úr sjóðnum og var úthlutað tæplega 28 milljónum króna til 63 aðila. Eins og undanfarin ár tók styrkúthlutunin til þriggja flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins: Menningar- og samfélagsverkefni, íþrótta- og æskulýðsfélaga og ungra afreksmanna.

Meðal styrkþegar í ár var Golfklúbbur Akureyrar ásamt ungum afreksmönnum innan GA og þökkum við KEA kærlega fyrir þeirra styrk.

Lista yfir alla styrkþega má finna á vef KEA - sjá hér.