Á dögunum var skrifað undir áframhaldandi samstarfssamning á milli GA og Slippfélagsins.
Þetta eru gríðarlega góðar fréttir fyrir okkur hjá GA en Slippfélagið hefur verið gríðarlega góður styrktaraðili hjá okkur í GA undanfarin ár og hjálpað okkur með málningu innan og utan á skálanum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Við hjá GA þökkum Slippfélaginu kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs með þeim á næstu árum.
Þá viljum við hvetja GA félaga til að beina viðskiptum sínum til þeirra aðila sem styrkja starfið okkar því þannig styðjum við GA.