GA sveit kvenna í 2. deild á Flúðum

Sveit GA kvenna er í 2. deildinni þessa dagana að berjast um það að komast upp í efstu deild. 

Sveit okkar er þannig skipuð: Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Björk Hannesdóttir, Kara Líf Antonsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir. 

Stelpurnar hófu leik í gær og unnu Golfklúbb Setbergs í fyrsta leik 2-1, þær Andrea og Bryndís unnu sína leiki 5/3 og 3/2 en Lilja og Björk töpuðu fjórmenningnum 3/2. Stelpurnar spila við Golfklúbbinn Esju núna í morgunsárið í annarri umferð.

Hér má nálgast stöðu og leikjaniðurröðun í 2. deild kvenna.