Golfhöllin er opin

Golfhölin hefur verið opnuð en þar gefst félagsmönnum kostur á því að pútta, slá í net og spila í hermum.

Við minnum á að allar bókanir í golfhermana fara fram á bókunarsíðu okkar.

Golfhöllin er opin 9-22 alla virka daga og 10-17 um helgar. 

Eins og kom fram í síðustu frétt með framkvæmdina á nýju inniaðstöðunni okkar þá miðar henni vel áfram og vonumst við til að geta tekið hana í notkun í desember en fram að því munum við vera með aðsetur í kjallara Íþróttahallarinnar þar sem Golfhöllin hefur verið undanfarin ár.