Golfklúbbur Akureyrar og Arion banki hafa undirritað samstarfssamning sín á milli til næstu þriggja ára.
Arion banki hefur styrkt GA veglega undanfarin ár og er það mikið gleðiefni að samstarfið haldi áfram næstu árin. Arion banki er einn af stærstu bakhjörlum GA og er samningur sem þessi mjög mikilvægur og hjálpar til við að halda úti því öfluga starfi sem fram fer hjá golfklúbbnum.
Þökkum við Arionbanka kærlega fyrir veittan stuðning og hlökkum til samstarfsins næstu árin.