Golfklúbbur Akureyrar og Skógarböðin afhentu í dag styrk að upphæð 1.000.000kr til Grófin - Geðrækt.
Yfir mótsdaga Arctic Open, miðnæturgolfmótsins, var efnt til styrktarleiks við Skógarböðin. Þar gat fólk reynt á heppni sína og getu í golfinu. og um leið styrkt gott málefni og átt möguleika á verðlaunum sjálft í leiðinni.
"Þetta tókst með eindæmum vel og skapaði skemmtilega upplifun og viðbót við golfmótið og heimsóknina í Skógarböðin. Okkur er sönn ánægja að afhenda Grófinni þennan styrk ásamt Skógarböðunum og vonum að hann komi sér vel við þeirra frábæra starf." - Steindór Kr. Ragnarsson.
Sonja Rún Sigríðardóttir frá Grófinni tók á móti styrknum í dag í Skógarböðunum frá þeim Kjartani Sigurðsson og Steindóri Ragnarssyni.