Linda Rakel Jónsdóttir kylfingur úr GA fór holu í höggi í dag á 4.holu í sannkallaðri rjómablíðu.
Linda Rakel er nýlega byrjuð í golfi og hefur lækkað sig hratt í forgjöf í sumar. Hún sló draumahöggið í dag með 7. járni.
Golfklúbbur Akureyrar óskar henni til hamingju með afrekið.