Íslandsmót golfklúbba hefst á Jaðarsvelli í dag

Annað árið í röð fer 1. deild karla fram á Jaðarsvelli í íslandsmóti golfklúbba þar sem 8 bestu sveitir landsins etja kappi um Íslandsmeistaratititilinn. 

Í fyrra var það Golfklúbbur Mosfellsbæjar sem fór með sigur að hólmi eftir æsispennandi úrslitaleik við okkar stráka í GA og er von á mikilli spennu í ár. 

Sveit GA er þannig skipuð: Veigar Heiðarsson, Tumi Hrafn Kúld, Valur Snær Guðmundsson, Örvar Samúelsson, Lárus Ingi Antonsson, Víðir Steinar Tómasson, Óskar Páll Valsson og Eyþór Hrafnar Ketilsson. 

Ljóst er að það verður mikið um spennu og gott golf á Jaðarsvelli næstu þrjá dagana og hvetjum við áhugasama til að kíkja upp á völl og fylgjast með okkar bestu kylfingum etja kappi.

Hér má nálgast stöðu leikja og allar umferðir