Kjör íþróttamanns Akureyrar fór fram í gær. Íþróttamaður Akureyrar 2011 var kynntur í gær í hófi á Hótel KEA, sundkonan Bryndís Rún Hansen var hlutskörpust þriðja árið í röð. Í öðru sæti varð handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar, og í þriðja sæti Helga Hansdóttir júdókona úr KA.
Við sama tækifæri var þremur einstaklingum veittar viðurkenningar fyrir störf þeirra í þágu íþrótta. Þetta eru Fríða Pétursdóttir, sem um árabil stóð í framvarðarsveit Fimleikafélagsins, Þóroddur Hjaltalín dómari, sem einnig sat í áraraðir í stjórnum Íþróttafélagsins Þórs og Þórarinn B. Jónsson sem hefur setið í stjórnum Þórs, Skíðafélagsins og Gólfklúbbsins og fl.
Ævarr er kylfingur GA 2011, hann vann 1. flokk karla í Meistaramóti klúbbsins með yfirburðum, hann var Norðurlandsmeistari, hann vann 2 mót af 4 í Norðurlandsmótaröð unglinga í flokki 15 – 16 ára, var í 2 og 3 sæti í hinum tveimur. Ævarr var tvisvar á topp 10 á GSÍ mótaröð unglinga og nokkrum sinnum þar rétt við. Hann var í 8 sæti á íslandsmóti unglinga og endaði í 11 sæti á stigalista GSÍ mótaraðarinnar hann er á yngra ári þar og voru einungis 3 ofar en hann á listanum fæddir 1996. Ævarr var valinn í æfingahóp GSÍ einnig var hann valinn í karla sveit GA sem keppti í 1. Deild í sveitakeppni GSÍ. Hann var í A sveit GA unglinga sem lenti í 4 sæti af 22 sveitum, vann alla sína leiki þar. Hann tók þátt í 2 af 4 mótum í Norðurlandsmótaröð lágforgjafarkylfinga fullorðinna, spilaði þar í 1. Flokki varð í 2 sæti í fyrra mótinu og í 3 – 6 sæti á lokamótinu. Ævarr er ungur og efnilegur kylfingur sem á eftir að láta mikið til sín taka á næstu árum. Hann efur sett sér mikil og göfug markmið í golfíþróttinni í framtíðinni. Óskum við honum velfarnaðar og til hamingju með þennan titil. Forgjöf hans lækkaði um 3.6 á árinu og er nú 5.7