Þar sem við viljum endilega fá fleiri lið þá ætlum við að lengja skráningarfrestinn út þessa viku og hvetjum GA félaga til þess að skrá sig til leiks.
Nú ætlum við að fara af stað aftur með Liða púttmótaröð GA. Hún tókst mjög vel í fyrra og vonandi fáum við fleiri lið nú í ár í þetta skemmtilega mót.
Fyrirkomulag keppninnar verður þannig að fjórir einstaklingar mynda hvert lið. (Hverju liði er þó heimilt að hafa einn varamann, sem tilkynna þarf við skráningu). Þegar að skráningarfrestur rennur út verður dregið í riðla og keppni hefst. Það spila allir við alla í sínum riðli. Þegar að riðlakeppni líkur verður úrslitakeppni haldin og stefnt er að því að hún fari fram upp úr miðjum apríl ( fer þó allt eftir fjölda liða).
Í hverri umferð í riðlakeppninni verða spilaðir tveir einmenningar og einn tvímenningur og er hver leikur 36 holu holukeppni.
Góð verðlaun í boði fyrir efstu liðin.
Þátttökugjald er 2000 krónur og rennur þátttökugjaldið í unglingastarf GA.
Skráning fer fram á agust@gagolf.is eða í síma 857 7009
Allir velkomnir.