Opnum fyrir bílaumferð á morgun

Á morgun, miðvikudag, ætlum við að opna fyrir bílaumferð á vellinum.

Eins og kylfingar vita er völlurinn viðkvæmur og blautur eftir veturinn þannig við biðjum kylfinga um að keyra varkárlega um völlinn. Það er mælst til þess að keyra alla þá stíga sem eru í boði og keyra sem minnst á viðkvæmum svæðum.

Þá eru salernin á vellinum að opna á morgun þannig kylfingar geta létt af sér á salernum við 7. og 14. teig.

Það er frábær veðurspá framundan þannig við hlökkum til að taka á móti fleiri kylfingum næstu daga.