Opnunarmót Jaðarsvallar 2024 - 1.júní

Opnunarmót Jaðarsvallar verður haldið laugardaginn 1. júní og er skráning hafin hér: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=4553857

Kylfingar skrá sig sjálfir á rástíma en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu GA í síma 462-2974 eða á skrifstofa@gagolf.is til að fá aðstoð með skráningu á rástíma.

Karlar spila af 54 teigum (gulir) og konur af 45 teigum (rauðir) karlar 70 ára og eldri og drengir 12 ára og yngri spila einnig af 45.

Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í punktakeppni með forgjöf. Einnig eru nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins.

Mótsgjald er 5.000kr.

​Athugið að líklegast verður ekki búið að opna holu 11 fyrir leik á þessum tíma og verður mótið því 17 holu mót.