Kæru GA meðlimir
Nú hafa skápagjöld fyrir árið 2023 verið sett í heimabankann. Þetta eru heilsárskápar í Klöppum sem um ræðir sem og skápar í nýuppgerðu Fjósinu og hvetjum við ykkur að ganga frá þeirri greiðslu sem fyrst - krafan ber ekki vexti eftir eindaga en hvetjum við alla meðlimi til að ganga frá greiðslunni sem fyrst eða gera grein fyrir sínum málum.
Töluverð eftirspurn er eftir skápum í Klöppum og í fjósinu og er biðlisti fyrir skápum á báðum stöðum þannig ef einhverjir ætla ekki að nýta sér þessa frábæru aðstöðu viljum við biðja viðkomandi um að hafa samband á jonheidar@gagolf.is