Kæru GA meðlimir
Nú hafa skápagjöld fyrir árið 2025 verið sett í heimabankann. Þetta eru heilsárskápar í Klöppum og fjósi sem um ræðir og hvetjum við ykkur að ganga frá þeirri greiðslu sem fyrst eða gera grein fyrir sínum málum. Eindagi er á kröfunni 1. desember en kröfurnar koma seinna en undanfarin ár og biðjum við því leigjendur skápanna að ganga frá sínum málum sem fyrst.
Töluverð eftirspurn er eftir skápum og er biðlisti eftir þeim þannig ef einhverjir ætla ekki að nýta sér þessa frábæru aðstöðu viljum við biðja viðkomandi um að hafa samband á jonheidar@gagolf.is