Stefnt er að því að hafa holur 1 - 9 opnar á morgun, sunnudaginn 16. nóvember ef veður leyfir.
Veðurspáin hefur breyst aðeins frá því í gær og aðeins meiri kuldi kominn í kortin. Við ætlum þó að láta á þetta reyna og hafa völlinn opinn þar sem veðurspám ber ekki saman:)
Það er því hægt að bóka sig á rástíma á golf.is.
Við gerum þetta þó með þeim fyrirvara að ef það verður frost í nótt eða á morgun þá verður völlurinn lokaður og allar rástímaskráningar detta út!
Upplýsingar verða settar hingað inn í fyrramálið um stöðu mála.