Þjónusta minnkar í klúbbhúsinu frá og með mánudeginum næsta

Golftímabilinu fer senn að ljúka en við hjá GA erum gríðarlega ánægð með sumarið og þökkum okkar yndislegu félagsmönnum sem og gestum kærlega fyrir heimsóknirnar á völlinn í sumar. 

Við minnum þó á hina stórskemmtilegu bændaglímu sem er á morgun, skráning á golfbox.

Jaðar Bistro lokar formlega frá og með morgundeginum og vill þakka kærlega fyrir viðskiptin í sumar og hlakkar til að halda áfram að þjónusta okkur allan ársins hring þegar hermarnir verða opnaðir hér á Jaðri. 

Skrifstofa GA verður opin alla virka daga frá 9-16 og lokuð um helgar frá og með 30. september en Jaðarsvöllur verður opinn eins lengi og við getum haldið snjónum frá okkur. 

Við munum að sjálfsögðu fylgjast vel með veðurspá næstu helga sem framundan eru og auglýsa opnunartíma ef viðrar vel og mæting á völlin er góð. 

Þökkum kærlega fyrir stórskemmtilegt golfsumar og vonumst til að félagsmenn okkar og aðrir geti spilað áfram inn í haustið eins og veður leyfir.