Halldór Rafnsson formaður GA sló fyrsta höggið á Arctic Open mótinu í dag kl. 15.00. 212 þátttakendur eru á mótinu og verður ræst úr til kl. 01.24 í nótt. Hæg norðvestanátt er á mótinu og 13 stiga hiti. Það er að létta til og miðnætursólin mun án efa sýna sig í kvöld. Frábær veðurspá er fyrir morgundaginn en 18 holur eru þá leiknar frá kl. 15.00