Uppskeruhátíð fyrir sumarið 2011 var haldinn í nýju aðstöðu GA í kjallara íþróttahallar á sunnudaginn og var þar margt um manninn, settar voru upp þrautir og leikir boðið upp á veitingar og viðurkenningar veittar fyrir ástundun, framfarir o.fl.
Þeir sem hlutu sérstakar viðurkenningar voru eftirtaldir:
Sérstök verðlaun fyrir góða ástundun: Ævarr Freyr Birgisson og Daníel Hafsteinsson
Sérstök hugarfarsverðlaun: Fannar Már Jóhannsson
Best í stúlknaflokki: Stefanía Elsa Jónsdóttir
Efnilegastur í flokki 14 ára og yngri: Kristján Benedikt Sveinsson
Bestur í flokki 14 ára og yngri: Tumi Hrafn Kúld
Efnilegastur í flokki 15-18: Ævarr Freyr Birgisson
Bestur í flokki 15-18: Ævarr Freyr Birgisson
Æfingar byrja svo núna mánudaginn 7. nóvember í íþróttahöllinn.