Úrslit úr febrúarmóti Skógarbaðanna í Trackman hermum

Í febrúar fór fram Febrúarmót Skógarbaðanna í Trackman hjá okkur og var þátttaka gríðarlega góð. 

59 karlar tóku þátt og 16 konur og var gaman að sjá að fólk reyndi oftar en einu sinni að ná 1. sæti í mótinu!

Úrslit voru sem hér segir: 
Karlar höggleikur með forgjöf:
1.sæti: Askur Bragi Heiðarsson 65 högg (böð og brunch fyrir tvo)
Konur höggleikur með forgjöf:
1.sæti: Björg Ýr Guðmundsdóttir 64 högg (böð og brunch fyrir tvo)
Karlar 70+ höggleikur með forgjöf
1.sæti: Guðmundur E. Lárusson 69 högg (böð og brunch fyrir tvo)
Opinn flokkur höggleikur án forgjafar
1.sæti: Veigar Heiðarsson 61 högg (betri seinni 9) (böð og brunch fyrir tvo)
Næstur holu á 11. holu:
Eva Hlín Dereksdóttir 1 m (böð fyrir tvo)
Lengsta drive á 18 holu:
Tumi Hrafn Kúld 321 m (böð fyrir tvo)

Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín á skrifstofu GA frá og með 5. mars.

Næsta mót mun koma inn í hermana í dag, marsmót Skógarbaðanna.

Verðlaun verða fyrir eftirfarandi þar
Karlar höggleikur með forgjöf
1.sæti: Mánaðarkort í Skógarböðin
2.sæti: Böð og brunch fyrir tvo
Konur höggleikur með forgjöf
1.sæti: Mánaðarkort í Skógarböðin
2.sæti: Böð og brunch fyrir tvo
Opinn flokkur, höggleikur án forgjafar
1.sæti: Mánaðarkort í Skógarböðin
2.sæti: Böð og brunch fyrir tvo

Eins og áður kostar ekkert í mótið og kylfingar þurfa að vera með trackman forgjöf til að taka þátt og er mótið í gangi í allan marsmánuð.
Ef tveir kylfingar eru jafnir í verðlaunasæti er talið til baka, fyrst seinni 9, síðan síðustu 6, 3,2,1.

Við þökkum Skógarböðunum kærlega fyrir þeirra stuðning og kylfingum fyrir þátttökuna.