23.01.2012
Í karlaflokki sigraði Þorvaldur Jónsson á 27 púttum en Anna Einars í kvennaflokki á 34 púttum.
20.01.2012
Annað mótið í undankeppni karla var í gær. Það voru einungis 30 sem skiluðu skorkorti úr þessu 2. móti í undankeppni Rydersmóts karla
19.01.2012
Ævarr er kylfingur GA 2011, hann vann 1. flokk karla í Meistaramóti klúbbsins með yfirburðum, hann var Norðurlandsmeistari, hann vann tvö mót af fjórum í Norðurlandsmótaröð unglinga í flokki 15 – 16 ára, var í 2. og 3. sæti í hinum tveimur.
17.01.2012
Mót þessi eru til styrktar unglingaráði GA.
Fyrstu sigurvegarar eru Kristján Benedikt Sveinsson í unglingaflokki, Auður Dúadóttir í kvennaflokki og Þórir V. Þórisson í karlaflokki. Báðir sigurvegarar í eldri flokkum urðu jafnir öðrum og þurfti að telja til baka hver yrði efstur.
14.01.2012
Hefst sunnudaginn 15. janúar - keppt í tveim flokkum. Eins og undanfarin ár (nema í fyrra) þá höfum við verið með mjög skemmtilega púttmótaroð í inniaðstöðunni og hefur innkoman farið til að efla unglingastarfið í klúbbnum á einn eða annan hátt.
11.01.2012
Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hittir norðlensk ungmenni
10.01.2012
Opið frá kl. 12.00 – 21.00 virka daga og frá kl 10.00 – 17.00 um helgar
05.01.2012
Púttmótaröð – Undankeppni fyrir Ryder keppni karla og kvenna
03.01.2012
Víðir Steinar Tómasson með fæst púttin og flesta ása. Er það markmiðið að halda árlega gamlársdagsmót þar sem mæting var mjög góð í þetta mót
29.12.2011
Samherji hf. boðaði til móttöku í gær í KA-heimilinu á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á 75 milljónir króna. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og verndari Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, var viðstaddur afhendinguna. Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta er fjórða árið í röð sem Samherji afhendir slíka styrki.